Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Tinna Árnadóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: í sambandi!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

I´m baaaaack!

07. maí 2009 klukkan 03:39
Hæ..... ok ég var eiginlega búin að gleyma að ég væri með þessa síðu!
Nema hvað - við náðum aldeilis að fara til Kanarí um áramótin, það var fullkomlega æðislegt!  Stefán flutti til Osló í mars og er að spila þar þó hann komi auðvitað líka heim með misjafnlega miklu millibili.. en annars er nú svosem ekkert voða mikið um að vera en það er nóg að gerast á næstunni!  Í fyrsta lagi þá eru burtfarartónleikarnir mínir!  Já ég er að útskrifast út Tónlistarskólanum í Reykjavík og það er mjög spennandi og líka pínu skerí því það er auðvitað alltaf svolítið óljóst hvernig áframhaldið verður en eins og sannur íslendingur segi ég bara "þetta reddast"
Cool  Svo eftir það fer ég til Noregs að heimsækja Stefán sem verður nýkominn út aftur hehe... nokkrum dögum eftir að ég kem heim frá Osló fer ég til Kanarí með familíunni að fagna afmæli múttu þannig að Júní verður rosa "erfiður" mánuður hehe... júlí verður líka mjög skemmtilegur mánuður - förum í tvö brúðkaup þá sem er nú alltaf frekar kósí hehe
Meira veit ég ekki því það er ekkert planað en ég mun nú ábyggilega skrifa það hérna inn.. ef ég man eftir því það er að segja!
Á Föstudaginn ætlum við Ragga og Sara að skella okkur á Robyn hina sænsku sem er fullkomlega geggjuð! hlakka hrikalega mikið til... en ekkert rosa tjútt samt, bara smá dans og svo heim að passa heilsuna og æfa aríur og svona
Surprised
Get eiginlega ekki sleppt því að segja afhverju ég er ennþá vakandi, er nefnilega búin að vera að vakna upp á nóttunni við mikil læti og þessvegna sofið lengur og þessvegna ekki verið þreytt og já bara svona.. allavega.. á sunnudagsmorguninn þá vaknaði ég við dyrabjölluna og leit ekkert á klukkuna, skundaði bara framúr og í dyrasímann og hélt bara að ég hafi sofið svona vel.. nei nei klukkan var 7 og gellan á neðri hæðinni var ekki með lykla, ég hleypti henni inn því ég vissi að hún byggi ekki ein og kæmist þá inn í íbúð nema að hún var bara berjandi á hurðina og kallandi og hringdi loksins á einhvern sem kom með lykla.. úff.. sunnudagskvöldið um 2-3 leytið var aftur verið að berja á þá hurð en þá einhver gaur og eftir að hafa sannfært hana looooksins þá var honum hleypt inn og hann fór svona hálftíma seinna.. humm... í gærkvöldi svo 2 dögum seinna vaknaði ég aftur um 3 leytið við dyrabjölluna.. fór í símann og einhver maður reyndi að sannfæra mig um að hann byggi þarna.. jeee.. ég skellti á hann en hann komst samt inn og fór að berja á aðra hurð í húsinu.. hann gafst á endanum upp og fór og löggan kom stuttu seinna eftir að konan sem hann var að banka hjá hringdi í þá, hún sagðist ekki hafa séð hann áður.. fannst eitthvað mjög spes við það en það kemur mér svosem ekkert við! En allavega ég vona bara að það verði ekkert drama í nótt.. búið að vera aðeins of viðburðamikil vika hehe

en jæja nú er ekki svo mikið eftir af FRIENDS true hollywood story sem er eiginlega alvöru ástæðan fyrir að ég er ennþá vakandi hahaha.. já nörd festist yfir þessu
En ég ætla að fara að sofa loksins
Ó já og svo ég segi það nú aftur - tónleikarnir mínir eru 17. maí í Salnum í Kópavogi kl 17
Góða nótt og vona að ég nenni að skrifa hérna inn með aðeins styttra á milli Kiss 

Veturinn genginn í garđ...

27. október 2008 klukkan 17:02
Haaalló... ég rankaði alltí einu við mér og sá að ég er ekki búin að blogga síðan vælið á afmælinu mínu.. je minn... það gengur auðvitað alls ekki!
Ég sit hér niðrí vinnu, voða lítið að gera því miður og er að skoða skóla fyrir næsta vetur.. soldið yfirþyrmandi en mjöög spennandi! Fékk reyndar smá heimsókn áðan og glímukennslu í leiðinni frá Myrkva - hann er nota bene 5 ára! hehe.. Annars er alveg helling búið að gerast frá því ég skrifaði hérna síðast, enda ekki skrítið þar sem það eru 3 mánuðir síðan. 
Fórum aftur austur í heimsókn í ágúst og í það skiptið með glímukappann með okkur... það var rosa stuð enda Eva og Ari líka á svæðinu til að leika við!  Það var engin útlandaferð, ég fór í sumarskóla í staðinn - geggjað! Annars er skólinn byrjaður á fullu og varla tími til að gera neitt annað en vinna og læra.. ég er tildæmis með ljótuna á háu stigi! Hárliturinn á mér er orðinn ansi daufur og leiðinlegur, þarf alvarlega á vaxi að halda og hárin á leggjunum farin að lengjast uppúr öllu valdi.. augabrúnirnar mínar eru líka orðnar ósýnilegar.. nú svo væri líka gott ef ég myndi nenna að hreyfa á mér rass***ið.. reyndar eru ég og Sara að fara að kaupa okkur kort saman og ætlum að verða orðnar hasarkoppar fljótlega! Helst fyrir jól þar sem ég stefni á að spranga um á bikiníi á Kanarí um áramótin... jebb! Vona að fólk fari að hætta við ferðirnar sínar í kreppunni og hels að það losni eitthvað 29. des - 5. jan.. það er reyndar eitthvað laust en bara aaaaðeins of dýrt, mætti lækka örlítið og þá verð ég glöð :)
Ég ætla ekki að tala um ástandið, nenni því hreinlega ekki..
En hey þið sem eruð fyrir austan þá held ég að það sé um að gera fyrir ykkur að vera svolítið menningarleg og mæta á tónleika sinfóníuhljómsveitarinnar þann 5. nóv.. þau ætla að skella sér á túr um landið þar sem japansferðinni var frestað! Þeir verða haldnir í kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskjó og ég held meira að segja að það sé frítt inn - þannig að þið hafið enga afsökun ;)

EN jæja lifið heil!

Einmana litla stelpan bloggar...

23. júlí 2008 klukkan 21:08
ó já ó já ó já.. stelpan er orðin 24. ára.. komin á 25. aldursárið sem þýðir hálf-fimmtug.... jæks! haha
nei nei ég er ekkert á bömmer.. var á pínu bömmer á afmælisdaginn sjálfan en það í rauninni tengdist ekkert aldrinum... var bara aaaalein! *grát*
dagurinn byrjaði reyndar mjög vel á miðnætti, Sól mín kom í heimsókn í vesturbæjinn til okkar meðan Stefán var að pakka - jább.. hann fór semsagt kl 6 um morguninn til Noregs.. var ekkert sérlega hamingjusöm en lifði hehe.. svo kom systa mín í heimsókn í hádeginu oooog svo fór hún til danmerkur.. afmælisdagurinn minn fór því í það að kaupa mér smá djammgalla ;) og rosa fallegan skáp í ikea sem er loksins kominn upp.. tók smá tíma þar sem hann er allur úr gleri og mjög þungur og flestar hjálparhellur einhversstaðar annars staðar en í Reykjavík.. en hann er voalega bjútifúl! og svo um kvöldið komu Sara og Jón eiginmaður hennar með köku og stjörnuljós hehehe.. voða kjút
en ok.. það sem á daga mína hefur drifið fyrir utan það er að við hjúin fórum austur í heimsókn.. það var alveg geggjað! fórum í afmæli til Ingunnar og Palla, sem var rosa stuð! svo daginn eftir var þynnka útí garði í 20 stiga hita... skemst frá því að segja að ég brann hahah.. sem er reyndar búið að breytast í smá brúnku - jeij! ekki algeng sjón á mér hehe svo er ég bara að vinna vinna og vonast til að geta farið í smá útlandaferð, það er verið að stefna á Manchester í lok ágúst, vona að það gangi upp :)
Í dag var ég rosa litrík og keypti mér fullt af allskonar snyrtidóti fyrir afmælispeninginn minn.... tíhí.. ótrúlega gaman hjá mér
hef annars lítið að segja, vinna í fyrramálið og svo frí um helgina, reyndar fer ég að vinna á sunnudaginn en bara sem aukamanneskja til 12.. alltí lagi að vera þunn ef svo vill til ;)
einhver til í að leika um helgina?? Stelpur... hver er staðan??

svo kemur Stefán heim á sunnudagskvöldið.. get ekki beðið! 

en þangað til næst - bæj

hor og slen og hálsbólga

30. júní 2008 klukkan 14:33
jæja gott fólk þar sem ég ligg hér ein heima í veikindum mínum þá ákvað ég að skrifa inn nokkur orð.. það sem ég hef verið að bardúsa síðan ég ritaði síðast er nú ekki mikið, er búin að hlusta á marga hornleikurara spila og tala.. það var mikið stuð, svo fór ég á teknó djamm um síðustu helgi.. tjahh.. ekki alveg minn tebolli!! en ég fór með Söru að hlusta á hann Jón hennar spila, hann er svona DJ nörri ;)
Svo fórum við hjúin á Náttúru tónleikana..  það var skítkalt en Björk var snilld - var ekkert sérlega hrifin af Sigurrós en eitt og eitt lag er alveg fínt, hin finnst mér bara öll eins... en nóg um það!
Já svo er ég að fara austur á miðvikudaginn því ég er að fara að syngja á tónleikum á Egilsstöðum á fimmtudaginn, rosa stuð.. vona að ég verði orðin hressari þá.. en ég fer aftur suður á föstudaginn að vinna eeeen svo gott fólk er ég að koma aftur austur næstu helgi þar á eftir og þá með borgarbarnið kærastann minn með! Það verður voða gaman að sýna honum "sveitina" hehe og bróðir minn og fjölskylda verður komin líka svo ég hlakka mikið til, sakna þeirra alltof mikið!
já það var nú svosem allt og sumt í þetta skiptið... ætla að fara að gera mér te eða eitthvað gotterí!
tjá

BTW vill einhver bjóða mér ferð til Bali??

letiblogg

25. maí 2008 klukkan 23:29
Ok Tinna nördi situr hér ein uppí sófa eftir obbóslega erfiðan dag - kem að því seinna!! - en já er semsagt að horfa á classical brit awards sem er alveg hin ágætasta skemmtun nema kemur ekki Sarah Brightman og syngur hið krúttlega pie jesu eftir andrew loyd webber með einum ofur sætum drengjakórs strák.  Allavega til að gera langa sögu stutta (samt ekkert svo löng í rauninni) en já strákurinn sem er svona 12 ára söng miklu betur með sinni englarödd heldur en Sarah Brightman.. hún bara jarmaði..je minn.. hún missti tötsið... nema nottla að hún hafi aldrei haft það og ég hafi bara verið að misskilja eitthvað Óákveðinn

en já að erfiða deginum mínum je dúdda mía... ég er semsagt byrjuð að vinna á 101 Hótel og vaktin mín byrjar kl 6.15 (já að morgni) og ég var að vinna föst, laug og svo í dag, kom svo heim og tjillaði aðeins, við stefán tókum brjálæðislega góðan 20 mínútna power nap og svo fór hann í fótbó og ég bara ein eftir hringdi í Sól sem var að fara Esjuna og bauð mér með - og já gott fólk Tinna Árnadóttir couch potato með meiru fór og labbaði Esjuna 24.5.08 kl 19.00... úff ég dó þegar ég kom heim öll lurkum lamin, enda er víst snakk og kók ekki kjörin fæða til að borða áður en maður fer í fjallgöngur - who knew??
ég nottla eins og sannur göngugarpur skutlaði mér í sturtu og opnaði mér svo einn bjór hehe

eníveis frí á morgun sem er ljúft!

hef eiginlega ekki meira að segja nema að sjómannadagshelgin framundan og ég á 10 ára fermingarbarnamót þannig að það verður ofur stuð hjá okkur!! úff hvað maður er orðinn gamall!!

jæja best að segja bara bless og reyna að redda mér smá nuddi tíhí

Tinna "göngugarpur"

öpdeit:
omg varð að láta þetta fylgja - þetta er awful!!!


Lćrdómur??

22. apríl 2008 klukkan 14:43
já þar sem ég sit hér alein heima og á að vera að læra þá datt mér auðvitað í hug að blogga - já vel gert finnst mér - og ef einhver hefur sérstakan áhuga á að taka próf í barokk og klassík þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við mig um hæl! eða nei annars, frekar einhver sem vill taka próf í nútímatónlist, je minn eini... ekki fyrir mig! 
allavega cosi fan tutte er búið og gekk það bara með eindæmum vel og gaman að sjá hve margir komu að horfa á okkur :) takk fyrir það... leiðinlegt bara að hitta ekki þetta yndislega fólk á hverjum degi eins og maður er vanur, það er mjög skrítið að vera alltíeinu ekki að syngja mozart heheh
hey svona meðan ég man, hvað er eiginlega Victoria Beckham gömul?? Sara þú getur kannski hjálpað mér... annað hvort eru fjölmiðlar ekki með þetta á hreinu eða hún er að reyna að rugla í okkur svo við föttum ekki hvað hún er í alvöru gömul... hún átti semsagt afmæli á dögunum og hinir ýmsu miðlar að tala um partýið og svona.. einn sagði að hún væri orðin 38 ára, annar sagði 39 og svo í dag var verið að segja að hún hefði átt 34. ára afmæli á dögunum.. tjahh ég bara veit ekki.. 
jájá smá útúrsnúningur... mér leiðist... stefán ákvað að skella sér bara til New York með hjaltalín.. eins og það sé eitthvað gaman!! hehe djók - ég er ekkert abbó sko!! allavega á meðan er ég að reyna að ná í allar sopranos seríurnar því ég er svo góð, það gengur samt soldið hægt, við getum kannski farið að horfa á þetta einhvern tímann á næsta ári hehe... var komin með smá samviskubit á að vera alltaf bara að ná í eitthvað stelpuefni, búin að vera dugleg í brothers and sisters - snilld, og gossip girl og svo nottla bíð ég spennt eftir nýjum þáttum af grey's anatomy og private practice.... jebb nörd
en hey nennir einhver að ráða mig í vinnu hérna í reykjavík.. tók nefnilega þá afdrifaríku ákvörðun að vera í borginni í sumar, en er bara ekki komin með neina vinnu, sem hræðir mig örlítið... 
en jæja er að spá í að kíkja á nýjasta gossip girl þáttinn og fara svo að snúa mér "aftur" að lærdómnum
tjá beibís

myndablogg

27. mars 2008 klukkan 17:09

Já takk Sól.. hvað fæ ég í verðlaun??? Skýst bara við á leiðinni á æfingu á morgun hehe

 

það er ýmislegt skemmtilegt búið að gerast á þessum mánuði síðan ég bloggaði síðast! Hér er til dæmis mynd af okkur hjúunum á íslensku tónlistarverðlaununum…

 

Hjúin

 

…svalari en allt eins og þið sjáið... það var ógeðslega gaman! sérstaklega þegar Páll Óskar kom og rokkaði húsið! ÉG ELSKA HANN!!!

 

já svo fór ég austur um páskana, kíkti aðeins á skíði með stóra bró og fjölskyldu, hér er litlan í 2 skiptið á skíðum rosa spennt og algjör pró!

 

Evan á skíðum

henni fannst voða kúl að vera í þessari stöðu hehe... 

og ein af pollanum sem er algjör snillingur! ég fékk semsagt að vera barnapía og knúsast mikið og sona voða stuð

 

Ari sæti

en já cosi fan tutte frumsýning á næsta leiti og allt að verða kreisí á æfingum, rosa stuð :)

ætla ekkert að vera að hafa þetta lengra.. bið bara að heilsa ykkur börnin góð!

hćjjjj

26. febrúar 2008 klukkan 23:24
já gott fólk ég er að blogga! spurning hversu skemmtilegt það verður en mér er alveg sama...
í fyrsta lagi langar mig að óska henni Ástu Huldu minni til hamingju með afmælið í gær.. stúlkan er eins og flestir vita stödd down unda' sem sökkar því ég sakna hennar rosa mikið og ekki beint auðvelt að skreppa þangað - en já: Til hamingju elskan mín, vona að þú hafir átt yndislegan dag Koss
allavega sviðsæfingar á óperunni okkar eru byrjaðar af fullum krafti! og fyrir ykkur sem ekki vitið þá er your's truly með hlutverk í óperustúdíóinu þetta árið og við erum semsagt að setja upp óperuna Cosi fan tutte og ég mun syngja Despinu.. rosa spennó - je minn - en já þannig að ég geri voða lítið annað en hanga í óperunni, vinna syngja og vinna... 
er annars akkúrat á þessari stundu að klára að setja inn myndir á www.tinnaarna.myphotoalbum.com af hattapartýinu sem ég hélt hérna um síðustu helgi.. það var snilld!! fullt af frábærum stelpum, frábærum mat Glottandi (btw ég bakaði sko!!!!!!) og bara frábæru stuði... spurning um að sleppa því að vera að lemja alla karlmenn sem maður sér samt - jebb það var ég... veit ekki alveg, fannst fyndið að dangla aðeins í þá....
annars næsti bjór sem er planaður er á laugardaginn þá fer ég með Diljá á Hjálmatónleika eftir að ég er búin að vinna.. verður gaman.. ætla nú samt ekki að vera þunn sko þar sem ég verð par aftur daginn eftir og leiðinlegt að vera eitthvað tussuleg eftir 3 og hálfs vikna fjarsamband hehe... ji hlakka hrikalega til.. 
jæja ég ætla ekki að hafa þetta langt.. ætla að fara aðeins betur yfir recitativ morgundagsins fyrir háttinn
góða nótt börnin góð

One tree hill ađ byrja aftur, nćs!

28. janúar 2008 klukkan 20:31
jæja svona í tilefni þess að ég er loksins komin með vetrardekkin undir Hóratíus þá ákvað ég að skrifa nokkrar línur hérna.. já ég er sko búin að vera spólandi og gangandi á víxl, ekkert rosa gáfulegt en nú er ég sko komin á gott ról... enda ekki seinna vænna hehe.. svo er líka spáð ennþá kaldara veðri og vindi og svona skemmtilegheitum! hlakka mikið til!

Allavega.. Þó svo að ég sé nú ekki naitive borgarbarn þá er maður soldið svona að spá í allri vitleysunni sem er í gangi hérna.. í alvöru það er bara ekki þörf fyrir aðra verslunarmiðstöð.. þó svo að mér finnist nú ALLS ekkert leiðinlegt að versla, þá skil ég ekki alveg tilganginn með að rífa gömul hús í miðbænum fyrir þetta! tjahh svona er það...

já annars er nú lítið um að vera.. Ásta og Þorvaldur farin til Ástralíu *sakn*, ég byrjuð að æfa fyrir óperustúdíóið á fullu sem mér finnst rosa gaman, og svo er La traviata að byrja þannig að það verður nóg að gera í vinnunni!

já jæja þetta verður bara stutt og laggott

bæjj

Kveđja

01. janúar 2008 klukkan 13:38
Halló elskurnar, vil bara óska öllum gleðilegra jóla og yndislegs nýs árs.. vona að allir séu bara glaðir og kátir!
hér er alveg rosa stuð, höfum það mjög gott í sólinni :)

Tinna kveður að sinni