Einmana litla stelpan bloggar...

ó já ó já ó já.. stelpan er orðin 24. ára.. komin á 25. aldursárið sem þýðir hálf-fimmtug.... jæks! haha
nei nei ég er ekkert á bömmer.. var á pínu bömmer á afmælisdaginn sjálfan en það í rauninni tengdist ekkert aldrinum... var bara aaaalein! *grát*
dagurinn byrjaði reyndar mjög vel á miðnætti, Sól mín kom í heimsókn í vesturbæjinn til okkar meðan Stefán var að pakka - jább.. hann fór semsagt kl 6 um morguninn til Noregs.. var ekkert sérlega hamingjusöm en lifði hehe.. svo kom systa mín í heimsókn í hádeginu oooog svo fór hún til danmerkur.. afmælisdagurinn minn fór því í það að kaupa mér smá djammgalla ;) og rosa fallegan skáp í ikea sem er loksins kominn upp.. tók smá tíma þar sem hann er allur úr gleri og mjög þungur og flestar hjálparhellur einhversstaðar annars staðar en í Reykjavík.. en hann er voalega bjútifúl! og svo um kvöldið komu Sara og Jón eiginmaður hennar með köku og stjörnuljós hehehe.. voða kjút
en ok.. það sem á daga mína hefur drifið fyrir utan það er að við hjúin fórum austur í heimsókn.. það var alveg geggjað! fórum í afmæli til Ingunnar og Palla, sem var rosa stuð! svo daginn eftir var þynnka útí garði í 20 stiga hita... skemst frá því að segja að ég brann hahah.. sem er reyndar búið að breytast í smá brúnku - jeij! ekki algeng sjón á mér hehe svo er ég bara að vinna vinna og vonast til að geta farið í smá útlandaferð, það er verið að stefna á Manchester í lok ágúst, vona að það gangi upp :)
Í dag var ég rosa litrík og keypti mér fullt af allskonar snyrtidóti fyrir afmælispeninginn minn.... tíhí.. ótrúlega gaman hjá mér
hef annars lítið að segja, vinna í fyrramálið og svo frí um helgina, reyndar fer ég að vinna á sunnudaginn en bara sem aukamanneskja til 12.. alltí lagi að vera þunn ef svo vill til ;)
einhver til í að leika um helgina?? Stelpur... hver er staðan??

svo kemur Stefán heim á sunnudagskvöldið.. get ekki beðið! 

en þangað til næst - bæj
23. júlí 2008 klukkan 21:08
Tinna Árnadóttir
Nanna skrifar ...
Til hamingju með daginn um daginn frænka ;)
01. ágúst 2008 klukkan 10:39
Sól skrifar ...
heyrðu elskan.. þetta er soldið sein en mig langar aðeins að minna á það að ég kíkti nú í stutta afmælisheimsókn með litla ammæligjöf þarna á deginum þínum!! Var kannski ekki sú hressasta miðað við aðstæður en ég myndi ALDREI gleyma þér

mundu það!!!
;)

hehe
knús
07. september 2008 klukkan 15:53

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Tinna Árnadóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Vinn í Íslensku Óperunni og er nemi í Tónlistarskólanum í Reykjavík..
  • Annađ: Tékkiđ á myndunum mínum međ ţví ađ smella á kubbinn ;) Free Photo and Video by myphotoalbum.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit