Já ég get sko sagt ykkur það... Wilson Rocknes ballið var klikk!! Strákarnir sko alveg að standa sig... verð nú bara að segja það.. það var alveg fullt af fólki og ég held að það hafi enginn skemmt sér illa.. reyndar frekar tíðindalaust ball.. fyrir utan smá bílaeltingarleik milli tveggja bíla (annar þeirra var lögreglubíll..) eeen nóg um það..
Ég á afmæli eftir 6 daga !! jibbí en það er á mánudegi sem sökkar... en það verður samt stuð um helgina því hún Ingunn á afmæli á laugardaginn... allt að gerast... þannig að við ætlum að hittast og halda upp á það með stæl ;)
ég er bara að drepa tímann núna og bíða eftir Rockstar.. ójá ég ætla sko að vaka
Eníveis þá er ég að fara til Duna Verde á Ítalíu eftir 15 daga.. það er semsagt rétt hjá Feneyjum.. sjitt hvað ég er spennt!!!
hérna er ströndin sem ég mun liggja á og við verðum þarna í húsunum í hringnum..
Hérna eru íbúðirnar :)
myndavélin verður að sjálfsögðu við höndina.. hefur reyndar ekki verið það mikið uppá síðkastið.. hún varð battlaus á ballinu síðasta sko.. en ég á nokkrar myndir frá hinu ýmsu sem ég á eftir að setja inn.. geri það fljótlega
en jæja nú ætla ég að fara að halda mér vakandi
góða nótt börnin mín
12. júlí 2006 klukkan 04:33
Tinna Árnadóttir 4 athugasemdir
Ætla að byrja á því að segja Tilhamingju með afmælið tvíbbar.. já Sigga og Magga eiga afmæli í dag.. sem þýðir bara eitt.. ég á afmæli eftir 10 daga hehe.. (þýðir nottla líka bjór í kvöld!) Allt að gerast núna.. svo er nebbla ÍTALÍA eftir 19 daga.. vúhú...
Finnst alveg furðulegt að það sé föstudagur í dag.. var að rífast við Möggu og Kalla á leiknum í gær um hvaða dagur væri og ég hélt því alveg staðfastlega fram að það væri miðvikudagur (ætlaði meira að segja fyrst að segja þriðjudagur hehe…) en Magga sannfærði mig þegar hún sagðist eiga afmæli á morgun og ég sá á símanum að það væri 6. og ég vissi að þær ættu afmæli á föstudegi.. je dú minn þetta alveg flýgur frá manni… ég verð bara orðin 22 ára og komin til ítalíu á morgun eða e-ð!! Það er líka búið að vera svo mikið að gera í vinnunni að ég bara týndi síðustu dögum…
Mér finnst alveg magnað að hann Magni (vó ekki að fatta orðaleikinn hehe…) hafi komist áfram… ekki það að ég hafi haft áhyggur en það er örugglega rosalega skrítið að vera þarna og performa fyrir alveg margar miljónir manns!Ég og Sigga vöktum yfir þessu á miðvikudagskvöldið.. drulluþreyttar en samt ofur spenntar hehe… gaman að þessu! Áfram Magni!!
En ég fékk frekar óskemmtilegt bréf um daginn frá einhverjum bjána útlending sem heldur að heimurinn snúist í kringum rassgatið á honum… ég var sko ekki skotin í honum þannig að hann ákvað að hella sér yfir mig á 3 handskrifuðum blaðsíðum! já takk fyrir.. soldið spes.. hehe…
Allavega.. á morgun er svo ball með Wilson Rocknes og mun ég að sjálfsögðu mæta og halda uppi stuðinu á dansgólfinu… hvet auðvitað alla sem vettlingi geta valdið að mæta.. verður stuð!
En hvernig er það.. ég hélt að júlí ætti að vera besti mánuðurinn.. júní var geðveikt góður fyrir okkur hér á austurlandinu (hahahahaha.. hí á ykkur í Reykjavík og nágrenni!) en í dag er bara rigning.. reyndar er mjög hlýtt sko.. búið að vera í allt sumar!
Mig langar í tattoo.. annað… Litla Tattoostofan er búin að vera hér í einhverja daga og fullt af fólki búið að fá sér og eftir því sem allir tala meira um þetta því meira abbó verð ég.. ohh.. jæja það bíður bara betri tíma…
En jæja snúllurnar mínar.. ætla að fara að borða beikonborgarann minn… mmmmmmmmmm
07. júlí 2006 klukkan 17:33
Tinna Árnadóttir 6 athugasemdir
vá hvað ég er orðin löt í þessu.. en af mér er það að frétta að ég beilaði á akureyrarferð og fór í staðinn á ball með Sixties.. það var bara mjög gaman mun fleiri mættu en ég bjóst við... fékk meira að segja að spila aðeins með hljómsveitinni heheh... reyndar bara á hringlu og bara á dansgólfinu en ég á mér greinilega framtíð sem slagverksleikari...
fór á fótboltaleik áðan... Fjarðabyggð-Valur... það var sona ágætt... Valur vann
er að horfa á David Beckham grenja í sjónvarpinu.. what.. held að hann sé hommi..
æj ég er ekki að nenna þessu akkúrat núna.. þannig að bara bless
02. júlí 2006 klukkan 23:51
Tinna Árnadóttir 6 athugasemdir
Vá hvað Mezzoforte tónleikarnir voru geggjaðir!!! skemmti mér svoooo vel.. það var reyndar líka mjög gaman á okkar tónleikum á föstudaginn.. gaman að syngja með Bodö Rythm Group og bara fullt af æðislegum tónlistarmönnum þarna.. svo áður en Mezzoforte steig á svið þá var kvartett sem spilaði og þeir voru einmitt alveg rosa góðir.. var ofsalega hrifin af bassaleikaranum (sem b.t.w. er lítill, feitur og sköllóttur kall hehe) en hann er algjör snilli.. söng sólóin sín alltaf með alveg á fullu.. það var æði...
kíktum svo aðeins á barinn og svo í partý og það er bannað að nota gegn mér hvað sem ég gerði í því partýi.. var ekki alveg með sjálfri mér heheheh.. aðeins í glasi stelpan.. var ekki alveg að meika'ða sko... en svo skoppaði ég nú bara niður túnið og heim einhverntímann og STEIN sofnaði um leið og ég kom inn úr dyrunum.. vá hvað ég var þreytt og glöð að komast í svefn.. búið að vera soldið mikið að gerast og sona...
En adda systir er farin aftur suður.. var hér yfir helgina sko...
svo er bara spurning hvort maður ætti að skella sér til ak næstu helgi.. það er víst einhver umræða um það... gaman að skella sér í smá roadtrip
ok vandræðalegasta móment sem ég hef lent í lengi!!! vá!!! fór í sund með öddu systur og beu frænku á sunnudaginn um sonna 5 leytið og THANK GOD að það voru fáir í sundi... mín tók fína, fína hvíta bikíníið og skellti sér í en var greinilega ekki búin að taka eftir því að það var GEGNSÆTT... je dúdda mía... hljóp sko í pottinn með hendurnar fyrir geirunum og öllu hinu og sat þar.. hljóp svo í sundlaugina og svo hljóp mín bara uppúr.. skelfilegt.. greinilega ekki sundhæft bikíní, meira svona bara uppá lúkkið á ströndinni eða eitthvað... allavega mun ég ekki bleyta það aftur... á sem betur fer annað hérna.... en búin að prufa sundlaugina allavega og hún var voða fín bara... á örugglega eftir að fara aftur!
en jæja... best að fara að næra mig aðeins
bless elskurnar...
26. júní 2006 klukkan 23:36
Tinna Árnadóttir 3 athugasemdir
.... já krakkar mínir,, stelpan er komin með myspace síðu!! Bóel skildi ekkert í því að ég væri ekki komin með mæspeis síðu þetta er víst það heitasta í dag.. þannig að konan bara skellti sér í þetta.. langar í fleiri vini takk!!! á bara fimm hehe.. hver vill vera vinur minn???
vel á minnst.. er búin að fá nokkrar kvartanir yfir myndaleysi en er búin að bæta úr því.. meira að segja setti af fjallkonunni.. mjög treg til samt sko neinei segi bara sona... þetta var voða gaman!
en ég er að fara í sturtu núna svo ég verði sæt fyrir stelpurnar.. ætlum að hittast á pöbbanum aðeins (ef hann er opinn það er að segja!!)
hef svo voða lítið að tala um.. en já það er samt jazzhátíðin um helgina og að sjálfsögðu er your's truly að syngja á eiðum... er svo fjölhæf sjáiði til... eníveis fullt af erlendum superstars að spila með okkur og bara frábært.. verður rosa gaman...
styttist í Italy... víví
ætti nú kannski að fara að hreyfa mig svo að fólkið þarna hlaupi ekki í burtu þegar ég kem á bikíníinu.. úfff... það gengur sko ekki!! burt, fita burt!!
en nóg um þetta.. farin að gera eitthvað skemmtó mýslurnar mínar - elska ykkur Tinnus
22. júní 2006 klukkan 23:55
Tinna Árnadóttir 7 athugasemdir
... já ég sit hér heima hjá Söru að horfa á Beverly Hills, hún og Sonja liggja hérna í sófanum sofandi, erum að bíða eftir að stelpurnar mæti í að grilla þær eru voða sybbnar stelpurnar hehe...
en haldiði að stelpan sé ekki að fara að vera fjallkonan á hátíðinni á morgun.. hahahahah.. finnst það fyndið.. en samt bara voða gaman.. var nú reyndar bara plötuð í þetta.. saklaus bankastarfsmaður að vinna vinnuna sína.. jájá.. svona er maður nú notaður hehe..
neinei sonja vöknuð.... annars er bara smá sötr á okkur stelpunum.. alltaf gaman að hafa stelpupartý..
eeen ég ætla nú ekkert að hafa þetta lengra.. ætlaði bara hér að halda mér vakandi...
ciao
17. júní 2006 klukkan 00:06
Tinna Árnadóttir 7 athugasemdir
gvööð það er búið að vera svo kreisí gott veður í dag.. um leið og ég var búin að telja pengene og sonna allt það, þá bara hljóp ég útúr vinnunni og brunaði heim og úr fötunum og útá pall í sólbað... varð ekki alveg vör við áhorfendurna fyrr en ég stóð upp að tala í símann og sá þá vinnandi þarna í garðinum við hliðiná.. en who cares?? ég hafði það voða gott..
ég er búin að reyna að vera rosa dugleg að updeita linka þegar ég sé nýtt bloggfólk (eða gamalt sem ég hef ekki vitað af) en ef þið viljið verða á meðal þeirra frægu sem eru hér þá bara láta vita ;)
halló samt.. 4 búnir að kjósa.. ég er viss um að fleiri ætli að gera eitthvað um versló.. afhverju komiði ekki bara með okkur söru til ítalíu.. þar verður geeeeggjað!!!
en svona verðum við stelpurnar á morgun - jibbí!!
15. júní 2006 klukkan 23:34
Tinna Árnadóttir 4 athugasemdir
já.. ofsalega ætlar þetta ár að líða hratt eitthvað..
síðasta helgi var voða skemmtileg.. fimmtud. barinn, föstud. partý, barinn, partý og laugard. partý, ball, partý.. ekki slæmt var reyndar að syngja á árshátið síldarvinnslunnar á föst.. vorum nokkur sem vorum með þægilega dinnermúsik meðan fólk hámaði í sig.. björgvin franz var veislustjóri og verð að segja að mér líkar barasta vel við hann.. en gæjinn sem var með honum var eitthvað furðurlegur..
það gerðist annars ekkert markvert hjá mér.. nema að ég komst að því að útlendingum finnst ópal vont (what's up with that??) og að ef þig langar að fá myndir af karlmannskynfærum í myndavélina þína skaltu skilja hana eftir á borði í partýi fullu af karlmönnum meðan þú skreppur á klósettið.. já.. blasti við mér þessi líka skemmtilega sjón þegar ég í sakleysi mínu ætlaði að fara að taka myndir af partýgestum... en þeim hefur verið eytt núna! ég var samt ekki alveg jafn dugleg að taka myndir og ég ætlaði mér.. er búin að vera að sökka við það hérna fyrir austan, enda kannski hef verið annað að hugsa hehe... eeen hendi þessum fáu inn og lofa alveg fullt af ferskum myndum næst en næsta helgi verðu tekin í ró og frið í pottinum eða eitthvað gott.. rólegheit á stelpunum.. samt aldrei að vita hvað við tökum okkur fyrir hendur.. gæti orðið skemmtilegt myndefni hehe...
vá ég bara verð að fara að eignast líf.. hef barasta ekkert að segja hérna..
jæja.. stelpan er farin út eða eitthvað.. er algjörlega að kafna úr hita
leitor píps
13. júní 2006 klukkan 22:09
Tinna Árnadóttir 6 athugasemdir
.. og ég var að koma inn frá því að þrífa bílinn.. djö.. harka
Á föstudaginn fórum við skvísurnar allar að spila saman partý og co heima hjá ingunni.. ég, ingunn, sara, sonja, þórdís, kristín og hulda misstum okkur soldið og ég hefði ekki gefið í það ef einhverjir strákar hefðu verið... þeir hefðu allavega flúið snemma hehehe.. reyndar komu tveir sem enginn þekkti nema ingunn en þeir stoppuðu nú ekki lengi.. bara nógu lengi til að klúðra soldið spilinu hehe.. en stelpurnar voru að fara að keppa daginn eftir þannig að það var bara chill á okkur..
svo á lau þá var nottla ball sko.. við mættum galvaskar til bræðranna nágranna okkar í partý og svo skunduðu allir á ball! það var reyndar mikið stuð á balli en samt soldið troðið en það var samt ekkert að skemma fyrir stuðinu.. allavega ekki fyrr en ég kom heim og lappirnar á mér voru allar útí sárum eftir fólk sem var að troða á mér og fínu nýju skónnum mínum! asnar! en svo var fínu eftir partý en það var nú hálf dautt en gott að það var stutt heim til mín þaðan hehe.. var mjög glöð þegar ég hlammaði mér í rúmið..
svo í gær vaknaði ég og skellti mér á power walk með mömmu og svo rúntinn með ingunni og svo grill heima.. helvíti kósí hjá okkur mömmu og pabba.. grilluðum dýrindis mat og borðuðum úti í blíðunni með hvítvínsglas í annari og svo þegar það var orðið svalt soldið þá kveiktum við bara á nýja gashitaranum þannig að það var bara ennþá 15 stiga hiti hjá okkur klukkan 8 hehe.. geðveikt næs! svo fór ég með söru í bæjinn og við tókum vídjó en sara hlustaði bara á myndina sökum þreytu í augum.. hehe.. ekki skrítið þar sem hún svaf í klukkutíma um nóttina og fór svo að vinna hjá fólki sem var ekkert að spá í að hjálpa til.. allavega.. svo er maður bara búinn að þrífa bílinn og núna veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér...
ohh ég elska að fá svona frídag..
jæja best að fara að drífa söru á lappir eller noget..
p.s. tók alveg hrikalega fáar myndir en skellti þeim samt inn á mínar myndir hér hægra megin ;) adios
Ég var að lesa Austurgluggann.. það var nefnilega að koma þessi líka skemmtilega umfjöllun um Sköpunina eftir Haydn sem við fluttum um síðustu helgi. Ég ætla nú að láta hér flakka smá bút og vona að Sigurður Ingólfsson fyrirgefi mér enda indælisdrengur ;)
"... og svo söng Tinna Árnadóttir Evu á þann brothætta hátt sem einkennir hana sem söngkonu. Það er þarna einhver tærleiki, eitthvað sem gæti minnt mann á gler verða til, eitthvað sem gæti minnt á listdans á skautum. Maður er alltaf hræddur um að eitthvað brotni, en það gerir það ekki, það fer einhvernveginn sína leið, fínlega og af þeim þokka sem á að einkenna hverja sköpun."
Jahá.. svona var nú það.. tíhí..
en ég er að vinna á Egilsstöðum núna og það er bara voða fínt. það var líka svo æðislegt veður í dag og maður verður eiginlega bara glaður á því einu saman..
fór í ræktina með söru í gær sem var mjööög tímabært! en sjitturinn ég hélt ég myndi detta niður dauð! það var biluð loftræstingin á stöðinni og heitt eftir því, það var bara eins og í gufubaði og það er ekki alveg ákjósanlegasta aðstaðan til að hlaupa og sprikla í.. úff...
svo er líka löngu tímabær litun og plokkun á morgun hjá ingunni.. jess.. það verður indælt.. og svo spila/stelpu kvöld annað kvöld og svo auðvitað BALL með svartklæddu mönnunum (eða beru mönnunum í tilviki Jónsa) á laugardaginn..
stuð.. úff hvað ég er orðin mössuð.. bara að deila þessu með ykkur.. en ég er farin út að labba eða eitthvað..
bæbb
02. júní 2006 klukkan 00:45
Tinna Árnadóttir 3 athugasemdir